Kaupmaðurinn á horninu

Bubbi Morthens · GCD · Rúnar Júlíusson

Það var einu sinni díler
sem dreymdi að eignast allt
dóp sem var í landinu og allt á sama stað
Hörðum höndum vann hann
og lævíst lagði net
í lausamennsku var hjá fíknó og átti Íslandsmet

     Hann hafði aldrei setið inni,
     nei ekki einu sinni
     Á laugadögum mætti ‘ann,
     menn þeir gátu hrætt hann
     hann talaði og talaði,
     og malaði og malaði.
     Framtíð fíknó skóp.
     Hann átti bæjarins, versta dóp

Hann átti fína nál og skeið
og skratti fína dælu
skríða þurftu menn til hans ef ekta vildu sælu
samkeppnin var engin
í undirheimum þá.
Alltaf varð hann fyrstur, kjafta menn á bak við slá.

     Hann hafði aldrei setið inni,
     nei ekki einu sinni
     Á laugadögum mætti ‘ann,
     menn þeir gátu hrætt hann
     hann talaði og talaði,
     og malaði og malaði.
     Framtíð fíknó skóp.
     Hann átti bæjarins, versta dóp

Hann blandaði með sykri
á svaka fína vigt.
Með svaka nef á feisinu sem fann ei neina lykt.
Var hataður af fíklum
sem finna það á sér
þeir fá ekkert dóp í bænum betra eins og er.

     Hann hafði aldrei setið inni,
     nei ekki einu sinni
     Á laugadögum mætti ‘ann,
     menn þeir gátu hrætt hann
     hann talaði og talaði,
     og malaði og malaði.
     Framtíð fíknó skóp.
     Hann átti bæjarins versta dóp

     Hann átti bæjarins,
     hann átti bæjarins,
     versta dóp.

Á Guitarparty: opna með hljómum