Hjálpaðu mér upp

Björn Jörundur Friðbjörnsson · Nýdönsk

Hjálpaðu mér upp,
ég get það ekki sjálfur.
Ég er orðinn leiður á að liggja hér.
Gerum eitthvað gott,
gerum það saman,
ég skal láta fara lítið fyrir mér.

     Hjálpaðu mér upp
     mér finnst ég vera' að drukkna.
     Hjálpaðu mér upp
     mér finnst ég vera' að drukkna.
     Hjálpaðu mér upp
     mér finnst ég vera' að drukkna.

Hvað getum við gert,
ef aðrir bjóða betur,
dregið okkur saman og skriðið inní skelina?
Nei, það er ekki hægt
að vera minni maður,
og láta slíkt og annað eins spyrjast út um sig.

     Hjálpaðu mér upp,
     mér finnst ég vera' að drukkna.
     Hjálpaðu mér upp,
     mér finnst ég vera' að drukkna.
     Hjálpaðu mér upp,
     mér finnst ég vera' að drukkna.

Þú!- Þú getur miklu betur en þú hefur gert.
Þú!- Þú ert ekki sami maður og þú varst í gær.
Þú! opnar ekki augun fyrr en allt of seint
opnar ekki augun fyrr en allt er breytt.

Hjálpaðu mér upp
mér finnst ég vera' að drukkna.
Drukkna í öllu þessu' í kringum mig.
Flýtum okkur hægt,
gerum það í snatri.
Ég verð að láta fara lítið fyrir mér.

     Hjálpaðu mér upp,
     mér finnst ég vera' að drukkna, ohh ohh. (ahh, ahh, ohh)
     Hjálpaðu mér upp,
     mér finnst ég vera' að drukkna. (ahh, ahh, ohh)
     Hjálpaðu mér upp,
     mér finnst ég vera' að drukkna, aahhh  (ahh, ahh, ohh)
     Hjálpaðu mér upp,
     mér finnst ég vera' að drukkna. (ahh, ahh, ohh)
     Hjálpaðu, hjálpaðu, hjálpaðu

     Hjálpaðu mér upp,
     mér finnst ég vera' að drukkna, drukkna. (ahh, ahh, ohh)
     ahh, hjálpaðu mér ahh, ohh
     ahh, ahh, ohh
     ahh, ahh, ohh

Á Guitarparty: opna með hljómum