Kötukvæði

Örvar Kristjánsson · Will Grosz · Sigurður Ágústsson frá Birtingarholti · KK · Magnús Eiríksson

Það var um kvöld eitt að Kötu ég mætti.
Hún var að koma af engjunum heim.
Það var í ágúst að áliðnum slætti
og nærri aldimmt á kvöldunum þeim.

Hún var svo ung eins og angandi rósir.
Ég hafði aldrei séð hana fyrr.
Um vanga dönsuðu lokkarnir ljósir
og augun leiftruðu þögul og kyrr.

     Hlýtt ég tók í hönd á Kötu,
     horfði’ í augun djúp og blá.
     Gengum síðan burt af götu,
     geymdi okkur náttmyrkrið þá.

En þegar eldaði aftur og birti
í hjarta ákafan kenndi ég sting.
Og fyrir augum af angist mig syrti.
Hún var með einfaldan giftingarhring.

     Hlýtt ég tók í hönd á Kötu,
     horfði’ í augun djúp og blá.
     Gengum síðan burt af götu,
     geymdi okkur náttmyrkrið þá.

En þegar eldaði aftur og birti
í hjarta ákafan kenndi ég sting.
Og fyrir augum af angist mig syrti.
Hún var með einfaldan giftingarhring.

Hún var með einfaldan giftingarhring.

Á Guitarparty: opna með hljómum