Kenndu mér að kyssa rétt
Kenndu mér að kyssa rétt og hvernig á að faðma nett, hvernig á að brosa blítt og blikka undurþýtt. Ég sem er svo óreynd enn, af ástarþrá ég kvelst og brenn en tækifærin fæ ég ei því flestir segja nei. Vona minna fagra fley er flotið upp á sker. Þú veist að gjörvöll gæfa mín er geymd í hendi þér. Kenndu mér að kyssa rétt og hvernig á að faðma nett, Þú færð að launum ástaryl, það er allt sem ég á til.
Á Guitarparty: opna með hljómum