Pípan (Ástarljóð)

Hafsteinn Guðfinnsson · Ragnar Ingi Aðalsteinsson · Sjöund

Ég sá hana fyrst á æskuárum
ósnortin var hún þá.
Hún fyllti loftið af angan og ilmi
æsandi losta og þrá.
Síðla á kvöldin við fórum í felur
mér fannst þetta svolítið ljótt.
En alltaf varð þetta meiri og meiri
munaður hverja nótt

Ég ætlaði seinna að hætta við hana
ég hélt að það yrði létt.
En ég varð andvaka næstu nætur
því nú voru takmörk sett.
Endurminningar örvuðu blóðið
ástin mér villti sýn.
Innan skamms fór ég aftur til hennar
og eftir það  varð hún  mín.

Hún fylgir mér ennþá svo trygg og trú
svo tágrönn og hnakkakert.
Aldrei hefur hún öðrum þjónað
né annarra varir snert.
Hvenær sem grípur mig hugarangur
hún huggar mig raunum í.
Þá treð ég í hana tóbaksmoði
og tendra svo eld í því.

Þá treð ég í hana tóbaksmoði
og tendra svo eld í því.

Á Guitarparty: opna með hljómum