Segðu ekki nei

Svanhildur Jakobsdóttir · Ingvar Hellberg · Ólafur Gaukur Þórhallsson

Út við gluggann stendur stúlkan
og hún starir veginn á
og hún bíður og hún vonar
að hún vininn fái að sjá.
En um síðir hringir síminn
og hún svarar í hann fljótt,
"Halló, halló," segir herrann,
"viltu koma að dansa í nótt?"

     "Segðu ekki nei,
     segðu kannski, kannski, kannski,
     segðu að þú elskir engan nema mig.
     Segðu ekki nei,
     segðu kannski, kannski, kannski,
     þá aldrei, aldrei ég skilja mun við þig."

Unga stúlkan hún er stórhrifin
og strax hún segir "Já".
Arm í arm þau leiðast ungu hjúin ætla ballið á.
Þegar hljóma ljúfu lögin
lágt hann hvíslar:  "Heyrðu mig,
viltu dansa þennan dans,
ég gjarnan dansa vil við þig."

     "Segðu ekki nei,
     segðu kannski, kannski, kannski,
     segðu að þú elskir engan nema mig.
     Segðu ekki nei,
     segðu kannski, kannski, kannski,
     þá aldrei, aldrei ég skilja mun við þig."

Og í ljúfum draumi líður kvöldið,
loks er komin nótt.
Við trúum stundum tæplega
hve tíminn líður fljótt.
Og er vangi strýkur vanga hlýtt
af vörum hvíslað er:
"Elsku litla sæta ljúfan,
má ég labba heim með þér?"

     "Segðu ekki nei,
     segðu kannski, kannski, kannski,
     segðu að þú elskir engan nema mig.
     Segðu ekki nei,
     segðu kannski, kannski, kannski,
     þá aldrei, aldrei ég skilja mun við þig."

     Segðu ekki nei,
     segðu kannski, kannski, kannski,
     þá aldrei, aldrei ég skilja mun við þig."

Á Guitarparty: opna með hljómum