Þorparinn
Þau sögðu að ég væri þorpari, þorpari í þorpinu. Og kjaftasögur kunni fólk um mig, ég flutti burt úr þorpinu. Svo kem ég aftur löngu síðar til að líta á gamla staðinn minn. Tvær gamlar konur stungu saman nefjum, þarna kemur þorparinn. Nú lá mín leið um stræti stórborga og oft var ég þar einmana. Ég veit samt ekki hvers ég saknaði en upp af svefni vaknaði. Hér kem ég aftur svona löngu síðar til að líta á staðinn minn og finn að ég er enn í eðli mínu sami gamli þorparinn. Þau byrja öll og enda alveg eins líkt á milli sleggju og steins. Með ógnar brimöldu á aðra hönd og sjoppu út við gráa strönd. Hér kem ég aftur svona löngu síðar til að líta á staðinn minn og finn að ég er enn í eðli mínu sami gamli þorparinn. Á meðan grösin uxu í vorinu unnum við í slorinu. Hjá einu af fyrirtækjum Sambandsins inn á reikning félagsins. Hér kem ég aftur svona löngu síðar til að líta á staðinn minn og finn að ég er enn í eðli mínu sami gamli þorparinn. Og finn að ég er enn í eðli mínu sami gamli þorparinn. Þorparinn, þorparinn, þorparinn, þorparinn.
Á Guitarparty: opna með hljómum