Rómeó og Júlía (Bubbi Morthens)
Uppi í risinu sérðu lítið ljós, heit hjörtu, fölnuð rós Matarleifar, bogin skeið, undan oddinum samviskan sveið. Þau trúðu á drauma, myrkrið svalt, draumarnir tilbáðu þau. Fingurnir gældu við stálið kalt, lífsvökvann dælan saug. Draumarnir langir runnu í eitt, dofin þau fylgdu með. Sprautan varð lífið, með henni gátu breytt því sem átti eftir að ske. Uppi í risinu lágu og ófu sinn vef, óttann þræddu upp á þráð. Ekkert gat skeð því það var ekkert ef ef vel var að gáð. Hittust á laun, léku í friði og ró, í skugganum sat Talía. Hvítir hestar drógu vagninn með Rómeó, við hlið hans sat Júlía. Trúðu á drauma, myrkrið svalt, draumarnir tilbáðu þau. Rómeó - Júlía, Rómeó - Júlía. Þegar kaldir vindar haustsins, blása naprir um göturnar, sérðu Júlíu standa, bjóða sig hása, í von um líf í æðarnar. Því Rómeó villtist inn á annað svið, hans hlutverk gekk ekki þar. Of stór skammtur stytti þá bið, inn á klósetti á óþekktum bar. Hittust á laun, léku í friði og ró, í skugganum sat Talía. Hvítir hestar drógu vagninn með Rómeó, við hlið hans sat Júlía. Trúðu á drauma, myrkrið svalt, draumarnir tilbáðu þau. Rómeó - Júlía, Rómeó - Júlía. Rómeó - Júlía, Rómeó - Júlía. Rómeó - Júlía, Rómeó - Júlía.
Á Guitarparty: opna með hljómum