Sódóma

Sálin hans Jóns míns · Guðmundur Jónsson · Stefán Hilmarsson

Skuggar í skjóli nætur
skjóta rótum sínum hér.
Farði og fjaðrahamur,
allt svo framandi er.

     Fyrirheit enginn á,
     aðeins von eða þrá.
     Svo á morgun er allt liðið hjá.

Sviti og sætur ilmur
saman renna hér í eitt.
Skyrta úr leðurlíki
getur lífinu breytt.

     Fyrirheit enginn á,
     aðeins von eða þrá.
     Tíminn fellur í gleymskunnar dá.
     Fyrirheit enginn á,
     aðeins draumar og þrá.
     Svo á morgun er allt liðið hjá.

Hérna er allt sem hugurinn gæti girnst.
já og eðal guðaveigar
Nóttin er ung og hún iðar í takt við þig. ó...
Allt getur gerst og eflaust gerist það víst
bara bruggið ef þú teigar.

Svo er svifið þöndum vængjum.
Svo er svifið þöndum vængjum.
Sódóma!
Yeah-yeah-yeah-yeah.
Sódóma!
Yeah-yeah-yeah-yeah.

Ahhhh, ahhh
Ahhh, ahhh, ahh, ahh.
Ahhhh, ahhh
Ahhh, ahhh, ahh, ahh.

Holdið er hlaðið orku,
hafið yfir þína sýn.
Drjúpa af dimmum veggjum,
dreyri, vessar og vín.

     Fyrirheit enginn á,
     aðeins von eða þrá.
     Lífið fellur í gleymskunnar dá.
     Fyrirheit enginn á,
     aðeins draumar og þrá.
     Svo á morgun er allt liðið hjá.

Á Guitarparty: opna með hljómum