Ford 57 (Komdu í partý)

Magnús Eiríksson · Mannakorn · Foringjarnir

Ég var að rúnta í ræfilslegum
Ford 57,
einmana í brakinu
og klukkan orðin tvö.
Þá urðu á vegi mínum „pæs“,
ég veifaði upp á grín,
þær sögðu: „Komdu komdu
komdu í partý til mín“.

Veistu hvað ég gerði þarna á
gamla fordinum,
bauð þeim öllum þremur far
og kveikt' á kananum.
Ég spurði hvert skal aka
og hvort einhver ætti vín,
þær sögðu: „Komdu komdu
komdu í partý til mín“.

Við komum svo í kyrrlátt hús
og kveiktum þar dauf ljós,
þær komu svo með brennivín
og kóka kóla í dós.
Þær klæddu sig úr hverri spjör
og kneifðu þetta vín,
þær sögðu „Komdu komdu
komdu í partý til mín“.

Þær sögðu „komdu, komdu
komdu í partí til mín".
þær sögðu „komdu, komdu
komdu í partí til mín".

Á Guitarparty: opna með hljómum