Taktu til við að tvista
Ertu einn af fólkinu sem hreyfir
aldrei legginn eða liðinn stirða
og liggur grimmt á meltunni
og sefur þegar tækifæri gefst
Og ert með það á planinu
því langtíma að fara fljótlega að girða
fyrir spikið en það bara dregst og dregst?
Eða ertu kannski tröstespiser,
knúinn slöppum taugum til að kýla kviðinn
og kannt svo vel að skjóta
vandamálagalleríinu á frest?
Hæ, gleðstu elsku feitabolla,
tími bjarghringanna er bráðum löngu liðinn
því lúði, eitt gefst allra best. Því segi ég..
Taktu til við að tvista,
teygja búkinn og hrista,
taktu til við að tvista,
tvista, tvista - tvista, tvista
Je je je je , je je je je.
Og sjáðu til, það hrynur af þér holdið
sem að gerði þér svo gramt í geði,
þú gengur bæði á Esjuna og Öskjuhlíð
og mæðin fyrir bí,
Svo lifirðu í vellystingum,
praktuglega, í endalausri ofsagleði
og ef þú ferð að fitna á ný, þá segi ég...
Taktu til við að tvista,
teygja búkinn og hrista,
taktu til við að tvista,
tvista, tvista - tvista, tvista
Je je je je , je je je je.Á Guitarparty: opna með hljómum